Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs ársins 2023 þann 15. nóvember. Rafrænn kynningarfundur 16. nóvember


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 15. nóvember nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 16. nóvember nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.