Festi hf.: Endurkaup vika 45


Í 45. viku 2023 keypti Festi alls 292.934 eigin hluti fyrir 53.683.389 kr. eins og hér segir:

VikaDagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð
456.nóv12:01:2870.00018412.880.000
457.nóv13:28:3170.000182,512.775.000
458.nóv14:08:0170.00018312.810.000
459.nóv15:24:5947.634183,58.740.839
4510.nóv12:04:3235.300183,56.477.550
   292.934 53.683.389


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 2.554.032 hluti eða 0,84% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.846.966 eigin hluti fyrir 527.760.925 kr. og á í dag 2.846.966 hluti sem samsvarar 0,93% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,15% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).