REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 45. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 473.500 eigin hluti að kaupverði 36.306.375 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
6/11/2310:2187.00077,006.699.00020.544.253
7/11/2313:2782.00076,506.273.00020.626.253
8/11/2310:2879.00076,506.043.50020.705.253
9/11/2311:0496.50077,257.454.62520.801.753
10/11/2309:46129.00076,259.836.25020.930.753
      
Samtals 473.500 36.306.37520.930.753


Reitir hafa nú keypt samtals 2.892.520 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 51,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 225.706.315 kr. sem samsvarar 46,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Frá lokum annars ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.722.520 eigin hluti fyrir 634.618.434 kr.

Reitir eiga nú samtals 20.930.753 eigin hluti, eða um 2,81% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 724.707.480.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.