Landsbankinn hf.: S&P breytir horfum lánshæfismats úr stöðugum í jákvæðar


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag um breytingu á horfum lánshæfismats Landsbankans úr stöðugum í jákvæðar og er lánshæfismat bankans því BBB/A-2 með jákvæðum horfum.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans, www.landsbankinn.is/lanshaefismat.