Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 46 keypti Sýn 325.000 eigin hluti að kaupverði 13.949.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
13.nóv 11:52:24 65.000 43 2.795.000
14.nóv 10:54:26 65.000 43,3 2.814.500
15.nóv 09:50:03 65.000 43,1 2.801.500
16.nóv 12:17:22 65.000 42,6 2.769.000
17.nóv 10:51:58 65.000 42,6 2.769.000
Samtals   325.000   13.949.000
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 130.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 455.000 eigin hluti eða sem nemur 0,18% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 455.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,18% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 19.610.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is