Festi hf.: Endurkaup vika 46


Í 46. viku 2023 keypti Festi alls 170.000 eigin hluti fyrir 30.872.500 kr. eins og hér segir:

Vika Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
46 13.nóv 13:14:48 70.000 182,5 12.775.000
46 14.nóv 10:42:47 30.000 181,5 5.445.000
46 17.nóv 13:02:35 70.000 180,75 12.652.500
      170.000   30.872.500


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 2.846.966 hluti eða 0,93% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 3.016.966 eigin hluti fyrir 558.633.425 kr. og á í dag 3.016.966 hluti sem samsvarar 0,99% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,15% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).