REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 46


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 46. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 806.000 eigin hluti að kaupverði 61.334.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
14/11/2310:0756.00075,254.214.00020.986.753
14/11/2310:17100.00075,257.525.00021.086.753
15/11/2310:02160.00074,0011.840.00021.246.753
15/11/2310:5140.00073,502.940.00021.286.753
16/11/2310:49100.00075,507.550.00021.386.753
16/11/2311:06110.00075,508.305.00021.496.753
17/11/2314:37240.00079,0018.960.00021.736.753
Samtals 806.000 61.334.00021.736.753


Reitir hafa nú keypt samtals 3.698.520 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 66,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 287.040.315 kr. sem samsvarar 59,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Frá lokum þriðja ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.698.520 eigin hluti fyrir 287.040.315 kr.

Reitir eiga nú samtals 21.736.753 eigin hluti, eða um 2,92% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 723.901.480.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.