Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 47 keypti Sýn 325.000 eigin hluti að kaupverði 13.754.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
20.nóv 11:23:59 65.000 42,5 2.762.500
21.nóv 10:41:41 65.000 42,2 2.743.000
22.nóv 09:53:35 65.000 42,1 2.736.500
23.nóv 10:33:19 65.000 42,1 2.736.500
24.nóv 15:02:28 65.000 42,7 2.775.500
Samtals   325.000   13.754.000
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 455.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 780.000 eigin hluti eða sem nemur 0,31% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 780.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,31% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 33.364.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is