Festi hf.: Endurkaup vika 47


Í 47. viku 2023 keypti Festi alls 210.000 eigin hluti fyrir 37.957.500 kr. eins og hér segir:

VikaDagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð
4720.nóv13:17:2770.000180,7512.652.500
4721.nóv14:35:0570.000180,512.635.000
4723.nóv12:12:2470.00018112.670.000
   210.000 37.957.500


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 3.016.966 hluti eða 0,99% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 3.226.966 eigin hluti fyrir 596.590.925 kr. og á í dag 3.226.966 hluti sem samsvarar 1,06% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,15% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).