Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 47. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 23.857.500 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
20.11.2023 11:00 1.500.000 3,980 5.970.000
21.11.2023 10:30 1.500.000 3,970 5.955.000
22.11.2023 09:36 1.500.000 3,985 5.977.500
23.11.2023 09:43 1.500.000 3,970 5.955.000
Samtals   6.000.000   23.857.500

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 89.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 95.500.000 hluti, eða um 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 398.705.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is