Landsbankinn hf.: S&P hækkar lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa Landsbankans í A+


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag hækkun á lánshæfismati sértryggðra skuldabréfa útgefnum af Landsbankanum. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því A+ með stöðugum horfum.

Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar S&P á lánshæfismati íslenska ríkisins sem tilkynnt var um þann 10. nóvember.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans, Lánshæfismat Landsbankans - Landsbankinn.