REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 47


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 47. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 852.248 eigin hluti að kaupverði 66.773.848 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
20/11/2309:39100.00079,007.900.00021.836.753
20/11/2310:10100.00078,507.850.00021.936.753
20/11/2315:0852.00077,504.030.00021.988.753
21/11/2309:50200.00076,7515.350.00022.188.753
21/11/2311:0024876,0018.84822.189.001
22/11/2309:34100.00076,007.600.00022.289.001
24/11/2310:18100.00079,507.950.00022.389.001
24/11/2310:43100.00080,758.075.00022.489.001
24/11/2314:47100.00080,008.000.00022.589.001
Samtals 852.248 66.773.84822.589.001


Reitir hafa nú keypt samtals 4.550.768 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 81,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 353.814.163 kr. sem samsvarar 73,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Frá lokum þriðja ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 4.550.768 eigin hluti fyrir 353.814.163 kr.

Reitir eiga nú samtals 22.589.001 eigin hluti, eða um 3,03% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 723.049.232.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.