Veðskuld slhf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar


Veðskuld slhf. : Innborgun á höfuðstól

Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. desember næstkomandi. Sjóðurinn mun því föstudaginn 15. desember 2023 greiða alls 1.120.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna vaxta og afkomuauka, afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.


Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda.