REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 48 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 48. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.049.232 eigin hluti að kaupverði 83.556.060 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
27/11/2311:16200.00079,7515.950.00022.789.001
27/11/2315:14190.00079,5015.105.00022.979.001
28/11/2310:15200.00079,5015.900.00023.179.001
28/11/2314:16150.00079,7511.962.50023.329.001
29/11/2312:46200.00079,5015.900.00023.529.001
30/11/2310:54109.23280,008.738.56023.638.233
Samtals 1.049.232 83.556.06023.638.233


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. október 2023, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 5.600.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 485 milljónum króna.

Félagið hefur nú keypt samtals 5.600.000 eigin hluti fyrir samtals 437.370.223 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð.

Frá lokum þriðja ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 5.600.000 eigin hluti fyrir 437.370.223 kr.

Reitir eiga nú samtals 23.638.233 eigin hluti, eða um 3,17% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 722.000.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.