Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 49. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 23.715.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
04.12.2023 10:09 1.500.000 3,980 5.835.000
05.12.2023 12:48 1.500.000 3,990 5.985.000
06.12.2023 10:54 1.500.000 3,970 5.955.000
07.12.2023 10:24 1.500.000 3,960 5.940.500
Samtals   6.000.000   23.715.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 101.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 107.500.000 hluti, eða um 2,82% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 446.232.500 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is