Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 12. desember kl. 15:00. Boðnir verða til sölu óverðtryggðu flokkarnir LBANK CB 27 og LBANK CB 29.

Áætlaður uppgjörsdagur er 19. desember 2023.

Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.