Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 51. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 23.385.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
18.12.2023 09:35 1.500.000 3,900 5.850.000
19.12.2023 10:30 1.500.000 3,870 5.805.000
20.12.2023 09:48 1.500.000 3,820 5.730.000
21.12.2023 15:27 1.500.000 4,000 6.000.000
Samtals   6.000.000   23.385.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 113.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 119.500.000 hluti, eða um 3,13% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 493.115.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is