VÍS: Endanleg dagskrá og tillaga til hluthafafundar 17. janúar 2024


Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar kl. 16:00.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja hluthafafundinn eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni:

https://www.lumiconnect.com/meeting/visjanuary2024

Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 15. janúar, eða tveimur dögum fyrir hluthafafundinn. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi. Öll gögn hluthafafundar, s.s. ályktunartillaga stjórnar og greinagerð með henni og leiðbeiningar um skráningu og rafræna atkvæðagreiðslu má finna á vefsíðu félagsins.  

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í s. 660 5260 eða með tölvupósti fjarfestatengsl@vis.is 

Viðhengi



Attachments

Fundarboð_2024-Endanlegt