Landsbankinn hf.: Leiðrétting: Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2023


Leiðrétting: Leiðrétt þýðing á íslensku tilkynningunni er komin inn. Einnig var sú leiðrétting gerð að tillaga bankaráðs til arðgreiðslu verður 16,5 milljarðar en ekki 16,6 milljarðar eins og upphaflega koma fram.

  • Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta og arðsemi eiginfjár var 11,6%.
  • Bankaráð hyggst leggja til við aðalfund bankans að bankinn greiði 16,5 milljarða króna í arð á árinu 2024.
  • Vaxtamunur heimila er 2% og helst stöðugur milli ára.  
  • Rekstrarkostnaður eykst í takt við verðlag en kostnaðarhlutfall hefur aldrei verið lægra, eða 33,7%.
  • Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2023 var 10,8 milljarðar króna og arðsemi eiginfjár var 14,5%.
  • Hækkun á hlutabréfum og erlendum skuldabréfum í eigu bankans á árinu nam samtals 15,3 milljörðum króna.
  • Fimmta árið í röð var ánægja viðskiptavina á bankamarkaði mest með þjónustu Landsbankans, samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2023.
  • Græn skuldabréfaútgáfa bankans gekk vonum framar og er græn fjármögnun nú 46,5% af erlendri fjármögnun bankans og 26,6% af heildarlántöku.
  • Bankinn gefur í dag út ítarlegar sjálfbærniupplýsingar, þ.m.t. útreikning á kolefnisspori lánasafns bankans en það hefur lækkað um 8% frá viðmiðunarárinu 2019.
  • Pillar III áhættuskýrsla fyrir árið 2023 kemur út samhliða birtingu ársuppgjörsins.
  • Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans kemur út 15. febrúar 2024.

  
Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta (2022: 17,0 milljarðar króna). Arðsemi eiginfjár var 11,6% á árinu 2023 eftir skatta (2022: 6,3%). Hreinar vaxtatekjur námu 57,6 milljörðum króna árið 2023 (2022: 46,5 milljarðar króna). Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 3,0% á árinu 2023 (2022: 2,7%). Hreinar þjónustutekjur námu 11,2 milljörðum króna árið 2023 (2022: 10,6 milljarðar króna). Aðrar rekstrartekjur voru jákvæðar um 5,1 milljarð króna (2022: neikvæðar um 3,8 milljarða króna). Hreinn hagnaður af fjáreignum og fjárskuldum á gangvirði nam 6.719 milljónum króna (2022: 7.963 milljóna króna tap). Virðisbreytingar útlána voru neikvæðar um 3,1 milljarð króna á árinu 2023 (2022: jákvæðar um 2,5 milljarða króna), þar af eru 1.670 milljónir króna safnframlag vegna óvissu um fjárhagslegar afleiðingar náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga. Breytinguna á milli ára má helst rekja til vanefnda og áðurnefndra náttúruhamfara, auk þess sem árið 2022 var virðisaukning vegna viðsnúnings á safnframlagi eftir að dregið hafði úr efnahagslegri óvissu sem skapaðist af Covid-19.

Rekstrartekjur bankans á árinu 2023 námu 73,8 milljörðum króna (2022: 53,3 milljarðar króna).  
Rekstrargjöld voru 28,2 milljarðar króna á árinu 2023 (2022: 25,9 milljarðar króna). Þar af voru laun og launatengd gjöld 15,9 milljarðar króna (2022: 14,5 milljarðar króna). Annar rekstrarkostnaður var 10,1 milljarður króna á árinu 2023 (2022: 9,3 milljarður króna).  
Hagnaður fyrir skatta á árinu 2023 var 45,6 milljarðar króna (2022: 27,4 milljarðar króna). Reiknaðir skattar, þar með talið skattur á heildarskuldir fjármálafyrirtækja og sérstakur fjársýsluskattur á laun, voru 15,5 milljarðar króna árið 2023 (2022: 13,2 milljarðar króna).  
Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) á árinu 2023 var 33,7% (2022: 46,8%). 
Heildareignir jukust um 173,8 milljarða króna á milli ára og námu í árslok 2023 alls 1.961 milljarði króna. Útlán jukust um 5,6% milli ára, eða um 86,5 milljarða króna. Í árslok 2023 voru innlán frá viðskiptavinum 1.048,5 milljarðar króna (2022: 967,9 milljarðar króna) og höfðu aukist um 80,7 milljarða króna. 
Eigið fé í árslok 2023 var 303,8 milljarðar króna (2022: 279,1 milljarður króna). Á árinu 2023 greiddi Landsbankinn 8,5 milljarða króna í arð til hluthafa. Eiginfjárhlutfall í árslok 2023 var 23,6% (2022: 24,7%). Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir 20,2% heildarkröfu um eiginfjárgrunn Landsbankans.  
Bankaráð Landsbankans hyggst leggja til við aðalfund, sem er á dagskrá þann 20. mars 2024, að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur 0,70 krónum á hlut vegna rekstrarársins 2023, samtals 16,5 milljarðar króna. Arðgreiðslan samsvarar 50% af hagnaði samstæðu bankans á árinu 2023. Verði tillagan samþykkt munu arðgreiðslur Landsbankans á árunum 2013-2024 samtals nema 191,7 milljörðum króna.  

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:  
„Landsbankinn skilaði traustri afkomu á árinu 2023. Bankinn er vel fjármagnaður, kostnaðarhlutfallið er með því lægsta sem gerist í bankaþjónustu í heiminum og bankinn hefur sterka arðgreiðslugetu. Góð afkoma var af öllum þáttum starfseminnar og arðsemi eiginfjár var 11,6% sem er umfram langtíma arðsemismarkmið bankans. Hærri ávöxtun á lausafé, viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum, útlánaaukning og breytt samsetning efnahags eru meginskýringarnar á auknum hagnaði frá fyrra ári.  Það er ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir hátt vaxtastig á landinu helst vaxtamunur heimila stöðugur.

Traustur rekstur til margra ára og kröftug stefna sem snýst um að einfalda viðskiptavinum lífið hefur breytt bankanum. Við erum einstaklega stolt af því að fimmta árið í röð var Landsbankinn efstur á bankamarkaði í Íslensku ánægjuvoginni. Viðskiptavinum hélt áfram að fjölga og mælist markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði nú 40,5%, hærri en nokkru sinni fyrr.

Mikil ánægja er með Landsbankaappið og aðrar stafrænar lausnir. Viðskiptavinir kunna líka vel að meta að hjá okkur getur þú fengið ráðgjöf og aðstoð í 35 útibúum og afgreiðslum um allt land, auk þess að hafa aðgang að einstaklega öflugu Þjónustuveri. Við höfum gert starfsfólki í útibúum um allt land kleift að veita ráðgjöf og þjónustu í gegnum síma, tölvupóst og á fjarfundum, óháð búsetu viðskiptavina. Með þessu styrkjum við starfsemina um allt land, jöfnum álag og aukum þjónustuna en sem dæmi má nefna að á árinu 2023 sáu útibú á landsbyggðinni um rúmlega 80% af allri ráðgjöf sem var veitt á fjarfundum og 70% af ráðgjöf sem var veitt í gegnum síma.

Landsbankinn hefur stutt vel við Grindvíkinga í þeirri óvissu sem ríkir vegna áframhaldandi jarðhræringa og eldgosahættu. Það sýndi sig hversu gott er að hafa traust net af frábærum ráðgjöfum þegar bankinn hafði samband við alla viðskiptavini sína í Grindavík sem voru með íbúðalán og aðstoðaði þá við að nýta sér úrræði um greiðsluskjól og niðurfellingu vaxta og verðbóta.

Bankinn er sterkur á fyrirtækjamarkaði og leiðandi á mörgum sviðum, m.a. sjávarútvegi og á byggingarmarkaði. Nú eru um 3.600 íbúðir í byggingu sem eru fjármagnaðar af bankanum en samkvæmt okkar mati samsvarar það um helmingi af öllum yfirstandandi byggingarframkvæmdum. Árið var mjög gott hjá fyrirtækjaráðgjöf bankans og færsluhirðing Landsbankans hefur fengið frábærar viðtökur síðan þjónustunni var hleypt af stokkunum árið 2022. Við munum áfram leggja áherslu á að auka þjónustuframboð bankans og fjölga tekjustofnum.

Bankinn er leiðandi í að opna bankakerfið í samræmi við PSD2-löggjöfina sem ætlað er að stuðla að aukinni samkeppni á fjármálamarkaði. Viðskiptavinir njóta þessa tæknilega forskots meðal annars með því að í Landsbankaappinu er nú hægt að framkvæma aðgerðir sem eru hvergi í boði annars staðar. Þróunin heldur áfram  og fljótlega munum við kynna nýjungar sem munu gera lántöku og endurfjármögnun íbúðalána enn einfaldari.

Vel heppnuð skuldabréfaútgáfa bankans á árinu sýnir að bankinn nýtur mikils trausts á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum. Nýjasta græna skuldabréfaútgáfa bankans, þar sem eftirspurn var fimmföld, heppnaðist einstaklega vel og er nú hátt í 50% af erlendri fjármögnun bankans græn.

Óvissa í efnahagslífinu hefur síst minnkað á síðustu mánuðum. Öll finnum við fyrir áhrifum af þrálátri verðbólgu og háum vöxtum, sem einnig þyngja róður fyrirtækja í auknum mæli. Í því ljósi er ánægjulegt að sjá að auknar kröfur til fjármálafyrirtækja hafa ekki leitt til aukins kostnaðar við bankaþjónustu. Þvert á móti er margra ára vinna við að einfalda og gera starfsemi bankans skilvirkari að skila bankanum einu lægsta kostnaðarhlutfalli sem sést í bankarekstri í heiminum. Þetta hefur meðal annars stuðlað að því að vaxtamunur heimila hefur lækkað. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að vaxandi efnahagsreikningur gerir bankanum kleift að veita stærstu fyrirtækjum landsins samkeppnishæf kjör og þjónustu. Þannig styðjum við kröftugt efnahagslíf á Íslandi og áframhaldandi verðmætasköpun sem er undirstaða lífskjara hér á landi. Landsbankinn er traustur banki fyrir farsæla framtíð og ætlar að vera áfram í fararbroddi í bankaþjónustu á Íslandi.“

Fjárhagsdagatal Landsbankans  

  • Aðalfundur 20. mars 2024  
  • Uppgjör 1F 2024 2. maí 2024  
  • Uppgjör 2F 2024 18. júlí 2024  
  • Uppgjör 3F 2024 23. október 2024  
  • Ársuppgjör 2024 6. febrúar 2025 

 

Nánari upplýsingar veita:                

Samskipti, samskipti@landsbankinn.is

Fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is

Viðhengi



Attachments

Landsbankinn_Ársreikningur_Samstæðu_2023 Landbankinn_Uppgjörskynning_2023 Landsbankinn_Fréttatilkynning_2023