Landsbankinn hf.: Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum


Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 23. mars 2023. Samkvæmt endurkaupaáætluninni munu kaupin nema að hámarki 54 milljónum hluta eða sem nemur 0,23% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar 2022.

Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 19. febrúar 2024 til og með 4. mars 2024.

Þeir hluthafar sem ákveða að taka boði bankans skulu fylla út tilkynningu þar að lútandi og senda bankanum. Eyðublað fyrir tilkynninguna er aðgengilegt á vef bankans. Tilkynningar verða afgreiddar á tímabilinu í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til hámarkinu (54 milljónum hluta) er náð. Verði hámarkinu náð á endurkaupatímabilinu verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.

Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa hvern hlut á endurkaupatímabilinu á gengi sem samsvarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en endurkaupatímabilið hefst.

Samkvæmt ársuppgjöri Landsbankans 2023 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 303.754 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.621 milljónir. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 12,8595 á endurkaupatímabilinu.

Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljónir hluta. Fjöldi hluthafa í bankanum er 849. Ríkissjóður á um 23.567 milljónir hluta eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 379 milljónir eigin hluti eða um 1,6% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 54 milljónir hluta eða um 0,23% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér boð bankans er að finna á vef Landsbankans, www.landsbankinn.is/endurkaup. Þá verða upplýsingar veittar í síma 410 4040 og þú getur einnig sent tölvupóst á vl@landsbankinn.is.

Upplýsingar veita:

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is