Landsbankinn hf.: Tilkynning um kaup Landsbankans á eigin hlutum – lok endurkaupatímabils


Þann 15. febrúar 2024 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á tímabilinu 19.febrúar 2024 til og með 4. mars 2024. Á endurkaupatímabilinu keypti Landsbankinn samtals 6.423.476 eigin hluti á genginu 12,8595, að kaupvirði 82.602.689 krónur.

Landsbankinn átti um 379 milljónir eigin hluti fyrir viðskiptin á endurkaupatímabilinu og að því loknu um 385 milljónir eigin hluti eða sem nemur um 1,6% af útgefnum hlutum í bankanum.

Endurkaup samkvæmt áætluninni gátu numið að hámarki samtals 54 milljónum hluta eða sem nam um 0,23% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar veita:                

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjárfestatengsl@landsbanki.is