Orkuveitan – Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitunnar (Orkuveita Reykjavíkur) lauk í dag, 12. mars 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 21.607 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.075 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,73% - 3,85%. Tilboðum að fjárhæð 875 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,79%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 29.921 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 900 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,20 - 3,38%. Tilboðum að fjárhæð 600 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,25%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar:
Brynja Kolbrún Pétursdóttir, framkvæmdastýra Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: brynja.kolbrun.petursdottir@or.is           
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is