Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 53 1 og RVKN 35 1.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 180 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 3,45%-3,53%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 120 m.kr á ávöxtunarkröfunni 3,45%. Útistandandi fyrir útboð voru 24.590 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 1.000 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 24.710 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 300 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 8,82%-8,90%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 8,85%. Útistandandi fyrir útboð voru 29.200 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 29.400 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 9. apríl.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is