Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2024 þann 23. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 2024 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/N2E3NmQ0ODMtZjdkYi00YWE1LWI0NTQtMDhlNWYxYWI1ZTUwLTExMDgwNDE=/tiny/S-minn-hf-.png)