Í 22. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.633.000 eigin hluti að kaupverði 6.336.680 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
27/05/2024 | 09:48:58 | 666.000 | 3.91 | 2.604.060 |
30/05/2024 | 15:18:59 | 967.000 | 3.86 | 3.732.620 |
Samtals | 1.633.000 | 6.336.680 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 13.022.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 14.655.000 hluti, eða um 0,398% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 57.764.530 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/MDAzMThkY2MtZTFjYy00YTZjLWFiNDAtOWQ5MzllZTRjMTIzLTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)