Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 2.320 m.kr.
Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 960 m.kr. í 3ja mánaða óverðtryggða víxilinn með 10,70% vöxtum og 440 m.kr. í 6 mánaða óverðtryggða víxilinn með 10,69% vöxtum eða samtals 1.400 m.kr. Áður hafði félagið selt 400 m.kr. á 10,99% vöxtum í víxilinn AL 24 0915. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 1.360 m.kr.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 18. júní 2024.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Alma íbúðafélag hf., í tölvupósti, ingolfur@al.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/NjViZTE0M2YtYmQ1NC00OGM3LWFhYzUtODgxYmFiZTk3Mzk3LTExMDU5MzM=/tiny/Alma-b-af-lag-hf-.png)