Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 19. júní 2024. Uppgjör viðskipta fer fram 24. júní 2024.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 980.000.000 á bilinu 3,56% - 3,67%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 840.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Útistandandi fyrir voru ISK 27.662.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 28.502.600.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 20.000.000 á kröfunni 3,45%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í flokkinn.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/YjQwNmNkYjItOGYwYi00ZGUyLTlmYTYtYjZjNTFhOGEyOGY2LTExMDc5NDM=/tiny/L-nasj-ur-sveitarf-laga-ohf.png)