Í 25. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.835.000 eigin hluti að kaupverði 10.687.830 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
19/06/2024 | 14:53:46 | 988.000 | 3.79 | 3.744.520 |
20/06/2024 | 10:14:17 | 853.000 | 3.77 | 3.215.810 |
21/06/2024 | 10:23:13 | 994.000 | 3.75 | 3.727.500 |
Samtals | 2.835.000 | 10.687.830 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 20.574.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 23.409.000 hluti, eða um 0,6% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 91.080.130 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/OTI5YzNhYjAtZjNkMC00NjI1LWFjYmMtMGE2YTI1NTg5ZTM0LTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)