Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28


Í 28. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.862.000 eigin hluti að kaupverði 14.404.060 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
08/07/2024 14:08:59 956.000 3.68 3.518.080
09/07/2024 12:06:55 888.000 3.73 3.312.240
10/07/2024 09:42:52 853.000 3.73 3.181.690
11/07/2024 14:10:46 538.000 3.77 2.028.260
12/07/2024 10:53:34 627.000 3.77 2.363.790
Samtals   3.862.000   14.404.060

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 27.209.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 31.071.000 hluti, eða um 0,84% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 119.460.280 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is