Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 29. viku 2024 keypti Síminn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 56.850.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
15.7.202414:171.500.0009,30013.950.00070.845.854
17.7.202410:531.500.0009,50014.250.00072.345.854
18.7.202411:521.500.0009,50014.250.00073.845.854
19.7.202410:191.500.0009,60014.400.00075.345.854
  6.000.000 56.850.00075.345.854


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 25. júní 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2025, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 69.345.854 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 75.345.854 eða sem nemur 2,84% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 24.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,91% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 223.725.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.