Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 29 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 119.050.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
15.7.2024 11:19:20 1.000.000  14,60  14.600.000
15.7.2024 14:11:13 1.000.000  14,55  14.550.000
16.7.2024 15:13:35 1.000.000  14,65  14.650.000
17.7.2024 13:51:29 2.000.000  14,90  29.800.000
18.7.2024 09:49:44 1.000.000  15,00  15.000.000
18.7.2024 15:07:29 1.000.000  15,30  15.300.000
19.7.2024 11:53:39 1.000.000  15,15  15.150.000
Samtals   8.000.000   119.050.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 8.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,169% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 119.050.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is