Heimar hf.: Birting grunnlýsingar


Heimar hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, hafa birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 30. júlí 2024, staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Heima, https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/skuldabrefautgafa/. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Nánari upplýsingar:

Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@heimar.is – S: 844 4776