REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150534


Reitir fasteignafélag hf. hefur stækkað skuldabréfaflokkinn REITIR150534 í tengslum við nýleg fasteignakaup. Nemur stækkunin 647.024.217 kr. að nafnvirði og verður því flokkurinn eftir stækkunina samtals 3.627.024.217 kr. að nafnvirði.

REITIR150534 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Stækkun flokksins nú er á ávöxtunarkröfunni 3,85%. Uppgjör fer fram í dag og verður óskað eftir því að bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hafði umsjón með útgáfu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416