Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 32 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 4.500.000 eigin hluti að kaupverði 68.312.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
6.8.2024 10:01:55 1.000.000  15,050  15.050.000
7.8.2024 14:47:14 2.500.000  15,225  38.062.500
9.8.2024 11:40:50 1.000.000  15,200  15.200.000
Samtals   4.500.000   68.312.500

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 18.631.783 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 23.131.783 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,490% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 348.653.307 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is