Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fyrstu sex mánaða ársins 2024 þann 15. ágúst - Rafrænn kynningarfundur 16. ágúst


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrstu sex mánaða ársins 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 15. ágúst nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 16. ágúst nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins. Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.