Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 33 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.900.000 eigin hluti að kaupverði 167.487.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
13.8.2024 12:07:06 1.000.000  15,150  15.150.000
13.8.2024 14:18:42 1.500.000  15,100  22.650.000
14.8.2024 13:34:43 2.900.000  15,125  43.862.500
15.8.2024 09:54:41 1.500.000  15,450  23.175.000
15.8.2024 14:41:00 1.000.000  15,400  15.400.000
16.8.2024 10:49:40 3.000.000  15,750  47.250.000
Samtals   10.900.000   167.487.500

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 23.131.783 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 34.031.783 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,721% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 516.140.807 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is