Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins



Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2024.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður Landsbréfa eftir skatta var tæpar 437 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2024 samanborið við tæpar 483 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.084 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 1.182 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var 3.555 milljónir króna samanborið við 4.118 milljónir króna í árslok 2023, en félagið greiddi móðurfélagi sínu Landsbankanum 1.000 milljóna króna arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 85,5% við lok tímabilsins.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu og hagnaður endurspeglar traustan rekstur félagsins. Markaðsaðstæður héldu áfram að vera krefjandi á fyrri hluta ársins, einkum á innlendum hlutabréfamarkaði. Verðbólga hefur komið hægar niður en vonir stóðu til og vaxtastig hefur haldist hátt. Það er sameiginlegt verkefni allra að stuðla að lægri verðbólgu til að tryggja að hagkerfið nái mjúkri lendingu og tryggja þannig stöðugleika til framtíðar. Ávöxtun sjóða Landsbréfa var misgóð á tímabilinu eftir tegundum sjóða en vel ásættanleg í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Landsbréf hafa haldið áfram að treysta stöðu sína sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi. Félagið rekur sem fyrr fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Viðhengi



Attachments

Landsbréf hf. - árshlutareikningur 30. júní 2024