Sýn hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn Sýnar hf.


Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone fjarskipta, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur gegnt starfinu frá apríl 2022, en sat áður í stjórn félagsins um árabil. 

Herdís Dröfn Fjeldsted:

„Sesselía hefur á undangengnum árum starfað ötullega með teymi sínu að sölu-, þjónustu og markaðsmálum fjarskiptareksturs Sýnar hf. Hún verður félaginu áfram innan handar þar til eftirmaður hennar verður ráðinn.  Við þökkum Sesselíu fyrir mikilvægt framlag í þágu félagsins og óskum henni velfarnaðar.“

Sesselía Birgisdóttir:

„Sýn er frábært félag og hef ég leitt ákveðnar breytingar innan Vodafone fjarskipta síðustu ár með því góða fólki sem þar starfar. Ég er mjög stolt af þeim árangri sem að náðst hefur á því tímabili og þeirri mikilvægu þjónustu sem fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum bæði í fjarskiptum og fjölmiðlun á degi hverjum. Ég óska félaginu alls hins besta og þakka samstarfið“ segir Sesselía Birgisdóttir.