Heimar hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2024


Heimar hf. munu birta samþykkt uppgjör fyrir tímabilið 1.1.- 30.6.2024, eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. ágúst 2024.

Af því tilefni bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í nýjum höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@heimar.is

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://www.heimar.is/kynningarfundir/uppgjor-2f-2024/

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001