Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 25. júní sl. er nú lokið.

Í 34. viku 2024 keypti Síminn hf. 5.432.890 eigin hluti að kaupverði 51.874.955 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
19.8.202413:071.500.0009,60014.400.000100.845.854
20.8.202413:551.500.0009,55014.325.000102.345.854
21.8.202411:281.500.0009,52514.287.500103.845.854
22.8.202409:56932.8909,5008.862.455104.778.744
  5.432.890 51.874.955104.778.744


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 25. júní 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2025, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 99.345.854 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 104.778.744 eða sem nemur 3,95% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 53.432.890 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,02% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.955 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.