Íþaka fasteignir: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki ITHAKA 300834


Íþaka fasteignir ehf. hafa lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, ITHAKA 300834.

ITHAKA 300834 er nýr verðtryggður flokkur sem gefinn er út til 10 ára. Endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) og fara greiðslur fram mánaðarlega, en eftirstöðvar greiðast að fullu á lokagjalddaga 30. ágúst 2034. Seld voru skuldabréf að nafnverði 3.500 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 4,25%.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna föstudaginn 30. ágúst 2024 og í framhaldinu verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.