Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 34 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 127.300.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
19.8.2024 11:46:05 1.500.000  16,000  24.000.000
19.8.2024 14:46:12 1.500.000  16,000  24.000.000
21.8.2024 13:56:23 3.000.000  15,850  47.550.000
23.8.2024 14:50:35 2.000.000  15,875  31.750.000
Samtals   8.000.000   127.300.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 34.031.783 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 42.031.783 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,890% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 643.440.807 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is