Alvotech tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Morgans Stanley

Iceland, Germany, India, U.S.


Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í 22. árlegri heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Morgans Stanleys í New York.

Fulltrúar framkvæmdastjórnar félagsins munu meðal annars sitja fyrir svörum þann 5. september nk. kl. 21:35 að íslenskum tíma. Bein hljóðútsending af fundinum verður aðgengileg í vefstreymi á meðan á kynningunni stendur og að henni lokinni.  

Til þess að hlýða á beint streymi verður hægt að nálgast hlekk á fjárfestasíðu Alvotech undir liðnum News and Events – Events and Presentations. Að ráðstefnunni lokinni verður upptaka af atburðinum aðgengileg í 90 daga hið minnsta.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy‘s (EES, Bretland og Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Forstöðumaður fjárfestatengsla- og samskiptasviðs
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir@alvotech.com