Síldarvinnslan birtir afkomu annars ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 29. ágúst 2024. Fjárfestakynning föstudaginn 30. ágúst 2024.


Síldarvinnslan birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2024 á fimmtudaginn kemur 29. ágúst.

Fjárfestakynning verður daginn eftir, föstudaginn 30. ágúst kl. 08:30, og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is.