Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs


Kaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 25 0303. Tilboð bárust fyrir 1.000 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 9,89%-10,20% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir.kr. á 10,20% vöxtum.

Greiðslu og uppgjörsdagur er mánudagurinn 2. september 2024. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.

Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is