Árshlutareikningur Jeratúns ehf. 1. janúar – 30. júní 2024


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 28. ágúst 2024.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á fyrri hluta ársins 2024 nam 32.873 þús. kr. og í lok tímabilsins var eigið fé jákvætt um sem nam 492.496 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Hlutafé var ekki aukið á tímabilinu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána um 22,5 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar. Núverandi leigugreiðslur eru 90.071 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Jakob B. Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Viðhengi



Attachments

Jeratún 1 1-30 6 2024 - Árshlutareikningur IFRS