Íþaka fasteignir ehf.: Árshlutareikningur fyrstu 6 mánuði 2024


Stjórn Íþöku fasteigna ehf. samþykkti á fundi sínum í dag, fimmtudaginn 26. september 2024, árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2024. Uppgjör félagsins hefur nú verið birt.

Helstu atriði árshlutareiknings:

  • Heildarafkoma félagsins á tímabilinu var 453,9 m.kr., þar voru stórir þættir rekstrartekjur félagsins sem voru 1.663,3 m.kr. á tímabilinu og matsbreyting fjárfestingaeigna að fjárhæð 759,5 m.kr.
  • Heildar eignir félagsins námu 46.543,2 m.kr. m.v. 30. júní 2024, en þar af voru fjárfestingareignir 44.550,2 m.kr. og handbært fé 513 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 27.770 m.kr. og eigið fé félagsins var 14.083,7 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins í lok tímabilsins var 30,3%.

Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar.

Þann 15. júlí 2024 var staðfestur samruni félagsins við annars vegar félagið BLT-lyftur ehf. og hins vegar útskiptan hluta félagsins Merkúr ehf. Samruninn miðar við upphafsdag 1. janúar 2024. Við samrunann runnu inn í félagið fasteignir að Dalvegi 30 og Laugavegi 95-99.

Félagið gaf út nýjan flokk skuldabréfa í flokknum ITHAKA 300834 sem stefnt er að verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í október 2024. Þá voru tekin til viðskipta í september 2024 skuldabréf í flokknum ITHAKA 051233 sem félagið gaf út undir lok árs 2023. Áður hefur félagið gefið út skuldabréf í flokkunum ITHAKA 291128 og ITHAKA 070627 og voru skuldabréf í báðum flokkum tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í ágúst 2022.

Íþaka fasteignir ehf. rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja.

Félagið stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.

Viðhengi



Attachments

Árshlutareikningur 30.6.2024