REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á Húsinu í hverfinu ehf.


Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á félaginu Húsið í hverfinu ehf. sem sjá má hér, tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt. Kaupsamningur hefur verið undirritaður og afhending hefur farið fram. Um er að ræða tæplega 2.500 fermetra af nýju og vönduðu skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem er í útleigu að fullu og eru áætlaðar leigutekjur um 110 m.kr. og áætlaður rekstrarhagnaður á ári um 95 m.kr.


Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á gudni@reitir.is og Kristófer Þór Pálsson, framkv.stj. fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á kristofer@reitir.is.