Í viku 43 keypti Heimar hf. („Heimar“) 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 125.100.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21.10.2024 | 15:00 | 1.000.000 | 31 | 31.000.000 |
22.10.2024 | 09:50 | 1.000.000 | 31,2 | 31.200.000 |
23.10.2024 | 09:37 | 1.000.000 | 31,2 | 31.200.000 |
24.10.2024 | 09:49 | 1.000.000 | 31,7 | 31.700.000 |
Samtals | 4.000.000 | 125.100.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. október 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar átti 16.312.500 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 20.312.500 hluti, eða um 1,12% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 625.100.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is