Reykjavík, 15 október 2020
Origo hf. heldur rafrænan kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs 3. ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 22 .október næstkomandi.
Á fundinum munu Jón Björnsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningin hefst kl. 08:30 og fer fram í gegnum fjarfundabúnað, en einnig verður hægt að fylgjast með netstreymi af fundinum.
Skráning fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning
Nánari upplýsingar
Jón Björnsson forstjóri í síma 693 5000 eða jb@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is